Já sæll. Eigum við að ræða þetta eitthvað eða? Nei, hélt ekki!
Skuggalega rugluð helgi að baki. Helgin hófst fyrir rúmlega viku síðan. Valur Rafn og Unnur buðu mér, Steinari og Agli í mat til sín í Þorlákshöfn. Tilefnið var hið árlega reiðhallarball. Æðislegur matur sem Rán móðir Vals kokkaði. Hefði svosem getað borðað meira en hann Steinar sá til þess að við fengjum ekkert alltof mikið. Mjög feitur maður í grönnum líkama.
Partíið heima hjá Val var bara skemmtilegt og mikið af góðu fólki. Menn komnir í misjafnt ástand þegar á ballið var haldið. “I wanna wish a merry christmas” varð einhverra hluta vegna að “I wanna miss you a merry missmass” Veit ekki alveg hvernig Egill fékk þennan texta út.
Ballið var skemmtilegt og mikið af fólki og núna hefst sagan! Rúnar, Bjarki, Daníel og GP-special kíktu í höfnina. Stóðum vel ölvaðir úti og vorum að spjalla við þá, eða Steinar spjallaði og ég kallaði þá bara aumingja fyrir að vera edrú. Anyways, Bjarki vildi bæta fyrir mistök sín með klikkuðu djammi á Akureyri helgina eftir. Ástæðan var sú að Bjarki var búinn að vinna 24/7 í langan tíma og átti alltof mikið af peningum sem hann sagðist verða að eyða.
Við játtum þessu án þess að vita hvað við vorum að koma okkur út í. Steinar minnti mig á þetta daginn eftir og ég hafði nú litla trú á að þetta myndi rætast. But man I was wrong!
Þegar leið á vikuna fór að heyrast í strákunum og þeir vildu að við efndum þetta loforð okkar. Já, við vorum svosem til í það en ætluðum ekki að húka í einhverri lítilli kjallarakitru yfir helgina. Rúnar hringdi á hótel Kea og heimtaði svítu en fékk þau svör að þetta væri bara fátæklingahótel fyrir skítugann almúga. Það er ekki eitthvað sem greifar sætta sig við. Næsta skref var hótel Akureyri. Engin svíta þar heldur en dingalinglingbing! Þar var honum boðin stór lúxus íbúð í hjarta miðbæjarins, vorum ekki lengi að bóka það.
Föstudagurinn rann loks upp. Vaknaði eins og venjulega, þó fann ég að þetta var enginn venjulegur föstudagur. Mikil ævintýralykt lá í loftinu og ég fann fiðringinn leika um mig. En jæja, ég kláraði að vinna og fór svo heim í bað. Svo var bara að bíða eftir þremenningunum, Steinari MasterKey, Rúnari kók og Bjarka Houdini (komum að því seinna).
Renndum útúr bænum um 6 leytið og tókum þá ákvörðun að bíða aðeins með áfengið. Bjarki hóf akstur á glæsilegri Mazdillac bifreið. Urðum strax hálf smeykir við veður og færð þar sem hitinn var við frostmark og við ekki beint á vetrardekkjum. Óttuðumst þó ekkert þar sem við vorum mjög vel búnir! Við vorum með 1 dúnúlpu, skóflu og fuuuuuuuuullt af víni. Tilbúnir í hvað sem er!
Færðin var ágæt alla leið að rótum Holtavörðuheiðar. Þegar upp var komið var glerhálka og við rétt dóluðum á 20-30 km hraða. Svo allt í einu sjáum við hazard ljós úti í kanti og 3-4 bílar stopp. Vissum strax að slys hefði átt sér stað en gerðum okkur ekki grein fyrir alvarleika þess. Vorum með fyrstu bílum sem kom að þessu. Lítill Opel hafði farið framan á Ford pallbíl. Útlitið var hræðilegt og röð blikkandi ljósa færðist nær og nær. Ekkert sem við gátum gert, þó svo að Bjarki sé sundlaugarvörður. Votta fjölskyldu alla mína samúð. Situr svolítið í manni.
Jæja, stoppuðum í Brú, ætluðum að fá okkur eitthvað smá í svanginn. Rúnar og Steinar ákváðu að fá sér Íslenska kjötsúpu. Ég sat rólegur og horfði á hetjuna mína Bjarka Bjarnason rústa einhverjum Vestmannaeyjingum í þættinum Útsvar. Náði að horfa á allan þáttinn þar sem að Steinar fékk sér einhverjar sautján áfyllingar á helvítis súpuna!!! Það ætti að vera líffræðilega ómögulegt að troða jafn miklu magni af matvælum ofaní þennan litla líkama. En loksins komumst við aftur að stað!
Á Blönduósi gafst Bjarki upp á því að keyra og Rúnar tók við. Hófst nú mikil og óhófleg neysla áfengra drykkja. Enn og aftur kom Steinar mér á óvart. Ég hélt að ég gæti drukkið bjór hratt en nei, ég var búinn með 2 litla þegar Steinar var orðinn vel hress með 4 stóra í maganum og alla helvítis kjötsúpuna.
Komum inná Akureyri um 23:00. Náðum í lyklana að íbúðinni, komum okkur fyrir og héldum áfram að stunda gjörsamlega glórulausa drykkju. Íbúðin hefði svo sannarlega sæmt konungsbornu fólki vel. Enda sætta greifar sig ekki við neitt minna. Fengum einhverja gesti sem þó stoppuðu stutt. Við vorum spenntir fyrir bænum og ákafir í að upplifa næturlífið. Tók okkur svona sirka 20 sekúndur að labba inná skemmtistað. Byrjuðum á “Dátanum”, sem er nú bara Sjallinn held ég. Þetta minnti mikið á “ástandið” á herárunum þar sem þarna voru komnir gífurlega myndarlegir fjórmenningar úr fjarlægum bæ. Bjarki var hinsvegar fljótur að láta sig hverfa, var svolítið mikið í því.
Rúnar var flottur á því. Hélt á seðlabúnti og var duglegur að dreyfa pening á stelpurnar. “Hey sæta, viltu pening? Ég á nóg af þessu!” Við stigum í burtu frá barnum og hópuðust þá ákafar meyjar í kringum okkur. Enda er það vel skiljanlegt. Eins og sannir greifar gera, þá létum við sætustu stelpurnar fá númerin okkar, þó helst Steinar og Rúnar, en þeir höfðu engan áhuga á númerum stelpnanna, enda eltir greifi ekki! Greifi er eltur.
Það kom nú að því að það væri tími til breyta um umhverfi þannig að við stukkum yfir á kaffi Akureyri. Þar voru kærastar kvenþjóðarinnar engin fyrirstaða! “Veistu, kærastinn þinn er aumingi!” En svo lokaði nú á endanum og ég hélt nú að við hefðum haldið hópinn nokkuð vel en svo var ekki. Steinar ákvað að fara heim á undan okkur. Bjarki var orðinn eitthvað fullur held ég, hann allavega hringdi á leigubíl til að keyra sig heim. Ekkert að því fyrir utan það að hann stóð á götunni fyrir utan íbúðina. Thumbs up Bjarki. Ég og Rúnar komum svo seinastir og ég týndi lyklinum með því að henda honum út á götu. Hélt ég væri að láta strákana hafa hann. Anyways, förum inn, hendum okkur í rúmið/sófann og steinsofnum.
Ég og Rúnar vöknuðum líka fyrstir. Tókum þá eftir því að hurðin var opin og eiginlega svolítið mikið brotin líka. Byrjuðum á því að blóta Bjarka í sand og ösku fyrir þennan verknað. Kíktum inní herbergi til strákana þar sem þeir lágu báðir í öllum fötunum, meira að segja í skónum og byrjuðum að skamma Bjarka. En nei, það var víst ekki Bjarki. Steinar hafði mætt að læstum dyrum snældubrjálaður og ákvað að sparka upp hurðinni að sönnum Jack McClane sið. (John McClane stútar Jack Bauer anyday!)
Ég hafði ekki miklar áhyggjur af þessu. Var ennþá sæmilega í glasi og svona. “Strákar mínir, þetta er ekkert mál. Förum bara í Byko og kaupum smá síkaflex (límkítti) Reddum’essu bara!” Ég sýndi þvílíka viðgerðarhæfileika og varla sá á hurðinni eftir það. Fyrir utan allt kíttið sem fór út um ALLT!
Flýttum okkur svo bara í Bakaríið við brúnna og snæddum dýrindis morgunmat. Svo kom að því að ná í aukalykil þar sem hinn týndist víst. Rúnar fór inn:
Rúnar: “Góðan dag, getum við nokkuð fengið aukalykil? Erum svo margir” Maðurinn á hótelinu: “Já, þið ætlið semsagt að týna fleiri lyklum???”
Rúnar: “Huh?”
Maðurinn á hótelinu: Já, það var hringt neðan úr bæ og ég látinn vita að lykillinn ykkar hefði fundist úti á götu”
Rúnar: (þögn) Flýtti sér út hlæjandi 
Þaðan lá leið okkar á Húsavík. Þunnir og vitlausir mættum við á skotsvæði til að skjóta leirdúfur. Ég og Bjarki byrjuðum og ég þrusaði einni í tææææætlur í fyrsta skoti. Gekk nú samt ekkert eftir það, en náði 1 af 25 sem er nokkuð betri árangur en hjá Bjarka og Steinari. Skutum líka á kókdós sem var nú ekki erfitt, en það vafðist eitthvað fyrir Steinari, tókst þó í þriðju tilraun. Við erum pottþéttir að ef leirdúfurnar hefði verið litlar hurðir þá hefði score-ið hans Steinars verið 25 af 25. Rúnar vann þessa macho keppni með 3 leirdúfur. Steinar og Bjarki hafa bara ekki þetta drápseðli. Kettlingar!
Af Húsavík var brunað á Mývatn til að skella sér í “bláa lónið” þar. Djöfull var það fáránlega N-I-C-E. “Huh?” Bjarki tómi!
Strákarnir gerðu heiðarlega tilraun til að drepa mig á leiðinni. Ég dottaði eitthvað aðeins... Allt í einu neglir Bjarki niður og strákarnir öskruðu af öllu afli. Djöfull brá mér skuggalega! Hélt ég væri að fara að deyja. 
Skelltum okkur svo á Greifann að snæða. Ég sveik algjörlega kjúklingapastað mitt og fékk mér einhverja pitsu sem ég gat svo ekki einu sinni borðað. Bjarki var við sama heygarðshorn og Trausti frændi hans líka. Steinar og Rúnar gerðu þetta almennilega, fengu sér kengúrufillet, greyið Skippy. Rúnar fékk sér þó bara barnaskammt, 200 grömm á meðan karlmaðurinn Steinar fékk sér 400 grömm en var það nóg? Nei, alls ekki, hann fékk líka 200 gramma ábót sem hvarf eins súkkulaðibitakaka uppí feita stelpu. Var hann saddur? NEI. Allt í einu veifuðu einhverjar stelpur okkur sem sátu þarna nokkrar saman og var Steinar fljótur að vippa sér yfir til þeirra og spjallaði við þær, við hinir horfðum á en heyrðum ekki hvað fór þeirra á milli. Þó, miðað við handahreyfingar og leikræna tilburði giskuðum við helst á að þarna færi fram gróf lýsing á villtu BDSM kynlífi. Gekk hann svo aftur að okkar borði og tilkynnti okkur að þær ætluðu að kíkja í partei.
Fórum að Ak-inn til að kaupa kókakóla fyrir captaininn. Mjög sæt stelpa sem afgreiddi okkur og við vorum ekki lengi að bjóða henni líka.
Uppí íbúð hófst enn og aftur mikil drykkja. Svo kom símtal. Stelpurnar af Greifanum vildu kíkja eeeeen, þær sögðu okkur að það væru tveir strákar með þeim og spurðu hvort þeir mættu kíkja líka. En já, NEI. Höfðum ekkert með einhverja gutta að gera. Blöndum ekki geði við almúgann nema það sé kvenkyns. Þau mættu þó fyrir utan og strákarnir vældu eitthvað inn um gluggann. Við drógum bara fyrir, Bjarki hristi hausinn, brosti, gaf þeim fingurinn og við héldum bara áfram að skemmta okkur.
Síðan lá leiðin á kaffi Akureyri og Ó MÆ GOD hvað við vorum miklir dólgar!!
Kem með dæmi:
Við sátum 4 saman á borði með tvær Akureyrarmeyjar. Þá koma einhverjir strákar og fara að tala við þær. Stelpurnar byrja að svara þeim.
Rúnar: “Afhverju í fjandanum eruð þið að tala við þessa helvítis Pólverja?!”
Strákarnir: “Við erum Íslendingar” (þeir voru í alvöru Íslendingar)
Við allir í kór: “Já dengdengdengdengdeng, við skiljum ekkert hvað þið segjið, drullið ykkur bara út!!” Og strákarnir löbbuðu í burtu.
Við vorum of leiðinlegir! 
Ég sat mikið á meðan strákarnir voru á vappinu og var duglegur að stela stólum frá fólki svo við hefðum nægt pláss. Rúnar var líka dulegur að stela stólum af mér og endaði meðal annars inná klósetti með stól. Við erum ekki alveg vissir ennþá afhverju.
Eruð þið að grínast með hvað það er ódýrt að drekka á Kaffi Akureyri?? Sem dæmi, Steinar ætlaði að fá sér þrefaldann malibu í ananassafa. Mér fannst ekki nóg þannig að ég lét stúlkuna á barnum bæta einföldum vodka út í líka. Svo fékk ég mér einn “Pétur Special” og fyrir þetta greiddum við 1650 kr. Það er bara fáránlega ódýrt. Bara einn “Pétur special” kostar 1200 í bænum.
Jæja, enn og aftur lokaði Kaffi Akureyri en mannskapurinn ennþá í hörku stuði. Fórum uppí íbúð og notuðum lykilinn í þetta skipti. Bjarki kallinn var orðinn eitthvað “þreyttur” og fór uppí rúm að sofa. Sökum skorts á kvenhormónum í íbúðinni sá Steinar ekki ástæðu til þess að vaka lengur. Þá var klukkan um 05:00. Ég og Rúnar vorum alls ekki í svefnbuxunum. Kveiktum á tónlist og drukkum Captain í Cult shaker, kókakólaið búið.
Ákváðum að nota tímann til að pirra hina sofandi drengi. Drösluðum hátölurunum uppí rúm til Bjarka, stilltum í botn og ýttum á play. Steinar hrökk við og fór að dansa en Bjarki rumskaði ekki. Glatað að bögga fólk þegar það virkar ekki. Vorum svo orðnir frekar leiðir á þessu, klukkan að detta í 07:00. En ég er snillingur eins og þið vitið, fékk þessa frábæru hugdettu.
Pétur (ég): “Jæja Rúnar, náðu í jakkann þinn. Núna förum við til Danmerkur”
Rúnar: “Heyrðu já, drífum í því, þetta er bara djamm!”
Við stukkum út og fundum leigubíl.
Við: “Jæja bílstjóri. Útá flugvöll!”
Bílstjórinn: “huh?”
Við: “Já eins og skot, þetta er bara djamm”
Komum svo út á flugvöll og þá var lokað, þetta var sko Akureyrarflugvöllur, veit ekki alveg hvernig við ætluðum að komast þaðan til Danmerkur ?
En jæja, það gekk víst ekki þannig að Færeyjar var næsta mál á dagskrá. En það gekk ekki heldur og við héldum bara heim á leið. Ósáttir við að hafa ekki komist til Danmerkur
Fórum bara að sofa, enda kominn tími til.
Sunnudagurinn fínn líka. Vorum ekkert að stressa okkur í bæinn. Enda æðislegt að vera þarna á Akureyri. Frábær bær! Kom mér líka á óvart hvað ég þekkti marga þarna. Strákpungarnir mínir. TAKK FYRIR SVAKALEGA HELGI!! 
LÚFFA *wrarrr* 

Einhversstaðar í Borgarfirði að henda saman einum hrikalega nettum geisladisk!

Ég að horfa á Útsvar og svínin að troða í sig.. Sæt svín samt 

Loksins komnir í bjór! Bjarki er samt alveg eðlilegur á þessari mynd 

Eigum við eitthvað að ræða þennan fallega gaur?? 

Kærastarnir mínir!

Geðveik íbúð!!!

Og geðveikur sófi!!

Ha? Hvað er Rúnar að gera? 

Verið að máta rúmið 

Grrrrrrrrr!!!

Vonda sæng.. SKAMM!! Refsa sænginni.

Gott dæmi um bullandi kynþokka!

Skil hana vel!

Nývaknaður og ekki ánægður með Steinar 

Wraaaaaaaaaaaarrrrrrrr 

Verið að versla í Byko 

Skiptir miklu máli að vera laghentur og að vera með réttu tólin!

Sprækir strákar á Húsavík! 

Geðveikt gaman!!

Þarna plaffaði ég fyrstu leirdúfuna í SPAÐ!

Steinar scary gaur!

Sprækur gaur í bláa lóninu á Mývatni. Sem er BTW geðveikt!

Ég er ekki sáttur við þessa pitsu.. 

Sætir.. Trausti átti líka að vera á þessari mynd. Ég bara kann ekki að taka myndir.

Össssss!

Hahahaha.. Veit ekki hvað annað ég get sagt 

Flottur hópur. 

Rétt áður en við fórum út á laugardeginum.

Og svo þegar við komum heim 
Jæja, vona að einhver hafi nennt að lesa þetta 